Innanhússhönnun sem skapar jafnvægi, hlýju og fallegt heimili

Hjá MÓI er markmiðið að skapa rými sem sameina fagurfræði og virkni. Hvert verkefni er unnið með þarfir, lífsstíl og persónuleika viðskiptavinarins að leiðarljósi, þannig að útkoman verði heimili sem er bæði fallegt og þægilegt til daglegs lífs.

Ég legg áherslu á vandaða hönnun, tímalausar lausnir og vel ígrundað efnis- og litaval. Hvort sem um er að ræða ráðgjöf, endurskipulagningu rýmis eða heildarhönnun, vinn ég náið með viðskiptavinum mínum til að skapa umhverfi sem endurspeglar þeirra sýn og þarfir.

Góð innanhússhönnun snýst ekki aðeins um útlit heldur líka um upplifun. Þegar rými er vel hannað verður það staður þar sem fólki líður vel og nýtur þess að vera.